SKÁLDSAGA Á ensku

Sense and Sensibility

Fyrsta skáldsagan sem kom út eftir Austen var Sense and Sensibility, þar sem systurnar Elinor Dashwood og Marianne eru í aðalhlutverkum. Í fyrsta uppkasti sögunnar sem skrifað var árið 1795 er sagan kölluð einfaldlega Elinor and Marianne. Austen endurskrifaði skrifaði hana tveimur árum síðar og þá var titillinn Sense and Sensibility kominn á handritið. Sagan var þó ekki gefin út fyrr en árið 1811. Sagan fjallar eins og áður sagði um tvær systur og gerir Austen út á að sýna andstæður þeirra. Elinor er hin skynsama og ráðdeildarsama stúlka (sense), en Marianne lætur hins vegar stjórnast af viðkvæmni og tilfinningum (sensibility). Eftir alls kyns uppákomur og ævintýri er það skynsemin sem stendur upp úr. Það sem þó hvað helst einkennir söguna er áherslan sem Austen leggur á hve mannleg samskipti geta verið flókin og nauðsyn þess að íhuga vel allar ákvarðanir.


HÖFUNDUR:
Jane Austen
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 444

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :